Ekið var á barn við hringtorgið á Vatnsendavegi og Þingmannaleið um miðjan dag í gær, en það er hringtorgið sem stendur rétt við verslun Krónunnar í Vallakór. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglu er talið að ökumaðurinn hafi blindast af sól þegar slysið átti sér stað.
Barnið, drengur sem er um 10 ára að aldri, var flutt á slysadeild, en eftir skoðun fór hann svo aftur í skólann.
Að sögn lögregluþjóns sem mætti á vettvang slapp drengurinn ótrúlega vel frá slysinu.