Víða verður léttskýjað

Víða verður léttskýjað í dag.
Víða verður léttskýjað í dag. mbl.is/Kristinn Ingvarsson

Spáð er fremur hægri breytilegri átt í dag og víða verður léttskýjað, en líkur eru á þokulofti við norðurströndina. Þykknar upp syðst í kvöld.

Vestan og suðvestan 3-10 m/s verða á morgun. Skýjað og sums staðar smá væta, en bjartviðri suðaustantil.

Hiti verður á bilinu 4 til 12 stig í dag, hlýjast sunnantil, en heldur hlýrra á morgun.

Veðurvefur mbl.is

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert