Icelandair tekur þátt í þróun rafmagnsflugvélar

Icelandair skrifaði í gær undir nýja viljayfirlýsingu við Heart Aerospace í tengslum við rafmagnsflugvél sem fyrirtækið vinnur að. Þá verður Icelandair hluti ráðgjafanefndar sem sænski flugvélaframleiðandinn hefur sett á fót.

Í ráðgjafanefndinni eru auk Icelandair fulltrúar frá flugfélögum, flugvélaleigum og flugvöllum. Ráðgjafanefndinni er ætlað að tryggja að flugvélin henti þörfum notenda sem best. Þannig er stuðlað að því að orkuskipti flugsamgangna geti hafist sem fyrst.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Icelandair. 

„Flugvélin sem Heart Aerospace vinnur nú að er 30 sæta tvinnvél, ES-30, sem mun nýtast vel í innanlandsflug á Íslandi. Icelandair og Heart Aerospace höfðu áður skrifað undir viljayfirlýsingu um 19 sæta rafmagnsflugvél, ES-19 en ES-30 mun koma í stað hennar.

ES-30 er 30 sæta farþegavél búin hljóðlátum rafmagnshreyflum sem geta einnig gengið fyrir sjálfbæru flugvélaeldsneyti. Á skemmri flugleiðum gæti vélin gengið eingöngu fyrir rafmagni og þar með gert kolefnislaust innanlandsflug að veruleika. Á lengri flugleiðum gæti vélin gengið fyrir blöndu rafmagns og sjálfbærs flugvélaeldsneytis. Drægni vélarinnar verður um 200 km með 30 farþega á rafmagni eingöngu, 400 km með blöndu af rafmagni og sjálfbæru flugvélaeldsneyti, en allt að 800 km með 25 farþega. Þannig gæti flugvélin nýst á öllum flugleiðum innanlands og dregið umtalsvert úr kolefnislosun. Heart Aerospace gerir ráð fyrir að flugvélin verði komin í notkun árið 2028,“ segir í tilkynningunni. 

Í ráðgjafanefnd Heart Aerospace sitja fulltrúar frá: Aerus, Air Canada, Air New Zealand, Braathens Regional Airlines, CDB Aviation, Cebu Pacific, Christchurch flugvöllur, DAT, Icelandair, London City flugvöllur, Mesa Air Group, Republic Airways, Rockton, SAS, Sevenair, Sounds Air, Swedavia, Toki Air, United Airlines, Vmo Aircraft Leasing og Wellington flugvöllur.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert