Ingvar nýr aðstoðarmaður Jóns

Ingvar S. Birgisson.
Ingvar S. Birgisson. Ljósmynd/Stjórnarráðið

Ingvar S. Birgisson hefur verið ráðinn aðstoðarmaður Jóns Gunnarssonar dómsmálaráðherra.

Ingvar er með B.A. próf frá lagadeild Háskóla Íslands, lauk þar meistaraprófi í lögfræði árið 2018 og fékk réttindi fyrir héraðsdómi árið 2019, að því er segir á vef ráðuneytisins. 

Ingvar var blaðamaður á Morgunblaðinu á árunum 2014-2016, var fulltrúi hjá Nordik lögfræðiþjónustu 2016-2019 og hjá Íslensku lögfræðistofunni frá árinu 2019. Á þessu ári settist hann í stjórn Ríkisútvarpsins ohf.

Ingvar var formaður Heimdallar, félags ungra sjálfstæðismanna í Reykjavík árin 2013-2015 og formaður Sambands ungra sjálfstæðismanna frá 2017-2019.

Ingvar mun starfa við hlið Brynjars Níelssonar sem aðstoðarmaður og hann kemur í stað Teits Björns Einarssonar sem hverfur til starfa sem aðstoðarmaður ríkisstjórnarinnar, segir ennfremur. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert