Stærir sig af sprengjugerð á Selfossi

Í einu myndbandanna er sýnt frá leifum af flösku og …
Í einu myndbandanna er sýnt frá leifum af flösku og það sem virðist vera efnaúrgangur. Skjáskot/TikTok

Notandi á samfélagsmiðlinum TikTok frá Selfossi sýnir frá því þegar hann sprengir heimatilbúnar sprengjur.

Á undanförnum dögum hefur lögreglunni á Suðurlandi borist tilkynningar um sprengingar á Selfossi sem lögreglan hefur staðfest að séu heimatilbúnar sprengjur þar sem notast er við ætandi efni ásamt öðrum efnum við gerð sprengnanna. 

Á reikningnum á TikTok má sjá tilraunir með heimatilbúnar sprengjur. Elsta myndbandið er frá því fyrir þremur dögum síðan en þar stendur: „Svona gerir maður bobu“. Í lýsingunni á myndbandinu segir að það heyrist „miklu hærra í persónu“.

Notandi spyr í athugasemd hvað sé notað í sprengjunni og svarar eigandi reikningsins að það sé natríumhýdroxíð, eða vítissódi.

TikTok-notandi sem kallar sig Selfoss bombs notar þessa forsíðumynd.
TikTok-notandi sem kallar sig Selfoss bombs notar þessa forsíðumynd. Skjáskot/TikTok

„Hver vill uppskrift?“

Í öðru myndbandi er sagt „Tilraun #2“ og í undirskriftinni er spurt: „Hver vill uppskrift?“. Nokkrir hafa svarað í athugasemdum og sagst vera áhugasamir um uppskriftina. 

Tvö myndbönd eru tileinkuð fréttum af sprengjum á Selfossi og er klippt saman myndbrot úr fyrri myndböndum af heimatilbúnum sprengjum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert