Treystir sér ekki til að vinna með „þessu fólki“

Halldóra getur ekki hugsað sér að vinna með þeim sem …
Halldóra getur ekki hugsað sér að vinna með þeim sem nú eru í framboði til forystu ASÍ. Ljósmynd/Aðsend

Halldóra Sigríður Sveinsdóttir, formaður stéttarfélagsins Bárunnar og annar varaforseti Alþýðusambands Íslands (ASÍ), ætlar, eins og staðan er núna, ekki að sækjast eftir endurkjöri í embætti varaforseta ASÍ á þingi sambandsins í október. Segist hún ekki geta unnið með því fólki sem nú er í framboði til forseta og varaforseta ASÍ.

Ragn­ar Þór Ing­ólfs­son, formaður VR, er enn sem komið er einn í framboði til forseta ASÍ. Embætti varaforseta ASÍ eru þrjú. Hefur Ragnar Þór sagt að hann vilji að Sól­veig Anna Jóns­dótt­ir, formaður Efl­ing­ar, verði annar varaforseti sambandsins, en hún hefur ekki ákveðið hvort hún muni gefa kost á sér.

Kristján Þórður Snæ­bjarn­ar­son, formaður Rafiðnaðarsam­bands Íslands og forseti ASÍ, sækist eft­ir því að verða fyrsti vara­for­seti sambandsins og Vil­hjálm­ur Birg­is­son, formaður Verka­lýðsfé­lags Akra­ness og Starfs­greina­sam­bands­ins, sæk­ist eft­ir því að verða þriðji vara­for­seti ASÍ.

„Ég ætla ekki að bjóða mig fram eins og staðan er í dag. Ef þetta verður ofan á þá treysti ég mér ekki til að vinna með þessu fólki,“ segir Halldóra í samtali við mbl.is.

Spurð hvort hún meti stöðuna þannig að enginn muni bjóða sig fram gegn Ragnari Þór segir Halldóra:

„Ég held að það sé ekki enn þá komið í ljós. Fólk er að velta stöðunni fyrir sér því að hún er sérstök og vinnuumhverfið er orðið mjög sérstakt.“

Engin lýðræðisleg hugsun leyfð

Halldóra var kjörin þriðji varaforseti ASÍ á miðstjórnarfundi sambandsins í nóvember í fyrra. Hún tók við sæt­inu af Ragn­ari Þór þegar hann tók við sæti annars vara­for­seta af Sól­veigu Önnu sem sagði sig frá öll­um trúnaðar­störf­um fyr­ir ASÍ samhliða af­sögn sinni sem formaður Efl­ing­ar. 

Segir Halldóra að þegar hún hafi verið kjörin hafi Ragnar Þór lýst því yfir á fundinum að hann myndi ekki styðja hana í neinu. Í kjölfarið hafi fulltrúar VR á fundinum ekki stutt kjör hennar.

„Þá tóku VR-ingarnir hendurnar niður. Þannig að ofbeldið er svo mikið að engin lýðræðisleg hugsun er leyfð eða að fólk fái að gera eins og það vill gera,“ segir Halldóra.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert