Skólarnir halda áfram samstarfi

Jón Atli Benediktsson, rektor Háskóla Íslands, og Joan T.A. Gabel, …
Jón Atli Benediktsson, rektor Háskóla Íslands, og Joan T.A. Gabel, rektor Minnesota-háskóla í Bandaríkjunum. Ljósmynd/Háskóli Íslands

Jón Atli Benediktsson, rektor Háskóla Íslands, og Joan T.A. Gabel, rektor Minnesota-háskóla í Bandaríkjunum, hafa undirritað samning um áframhaldandi samstarf milli skólanna til næstu fimm ára.

„Þetta er gríðarlega ánægjulegt og þetta samstarf, sem hefur staðið í 40 ár, er einstakt,“ segir Jón Atli í samtali við Morgunblaðið. Um er að ræða fyrsta skólann sem Háskóli Íslands gerði heildstæðan tvíhliða samning við á sínum tíma og hefur samstarf skólanna gengið einstaklega vel, að hans sögn.

Nánari umfjöllun má finna í Morgunblaðinu í dag.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert