Strætó og leigubíll skullu saman

Einn var fluttur á sjúkrahús.
Einn var fluttur á sjúkrahús. mbl.is/Hari

Leigubíll og strætisvagn lentu saman á gatnamótum Hringbrautar og Njarðargötu um klukkan 10 í morgun. Þetta staðfestir Stefán Kristinsson varðstjóri hjá Slökkviliði höfuðborgarsvæðisins. Rúv greindi fyrst frá. 

Einn var fluttur á sjúkrahús til aðhlynningar, og var sá í leigubílnum, en áverkar hans reyndust ekki mjög hættulegir, að sögn varðstjórans. 

Þá var dælubíll sendur á vettvang til að þrífa upp olíu sem hafði lekið úr bílnum. Störfum slökkviliðsins er nú lokið á vettvangi.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert