Ísland í áttunda neðsta sæti yfir fjölda látinna í umferðinni

Hitt markmið stjórnvalda er að látnum og alvarlega slösuðum fækki …
Hitt markmið stjórnvalda er að látnum og alvarlega slösuðum fækki að jafnaði um 5% á ári til ársins 2034. Það markmið hefur ekki náðst undanfarin ár. mbl.is/Árni Sæberg

Ísland situr nú í áttunda sæti yfir þau lönd sem standa sig best í Evrópu á lista hvað varðar fjölda látinna í umferðinni á hverja 100.000 íbúa. 

Fram kemur á vef Vegagerðarinnar, að meðal markmiða stjórnvalda um aukið umferðaröryggi til ársins 2034 sé að Ísland verði í hópi fimm bestu Evrópuþjóða hvað varðar fjölda látinna í umferðinni á hverja 100.000 íbúa.

Síðustu fjögur ár hefur Ísland verið í tíunda neðsta sæti á lista sem tekinn er saman af CARE, sem rekur samevrópskan umferðarslysagagnagrunn, en við útreikninga er tekið mið af meðaltali á fimm ára tímabili. Árið 2021 færðist Ísland niður um tvö sæti og situr nú í áttunda sæti yfir þau lönd sem standa sig best í Evrópu.

Graf/Vegagerðin

„Raunar hefur árangur Íslands verið enn betri í gegnum tíðina en á árunum 2011 til 2015 var Ísland í þriðja til fimmta neðsta sæti yfir látna í umferðinni. Líklegt má teljast að aukinn fjöldi ferðamanna í umferðinni hafi töluvert að segja um þróunina síðustu ár en við útreikninga er miðað við fjölda íbúa í landinu en ekki tekið tillit til fjölda ferðamanna.

Þess má geta að um 19% látinna í umferðinni eru erlendir ferðamenn þegar litið er til síðustu tíu ára. Um 15% látinna í umferðinni eru erlendir ríkisborgarar sem búsettir eru hér á landi en um 66% íslenskir ríkisborgarar. Ferðamenn og erlendir ríkisborgarar sem búsettir eru hér á landi eru því um þriðjungur þeirra sem hafa látist í umferðarslysum frá árinu 2012 til 2021,“ segir í umfjöllun á vef Vegagerðarinnar. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert