ASÍ fordæmir forgangsröðun ríkisstjórnarinnar

Miðstjórn ASÍ kveðst krefjast þess að stjórnvöld sýni ábyrgð.
Miðstjórn ASÍ kveðst krefjast þess að stjórnvöld sýni ábyrgð. mbl.is/Hjörtur

Miðstjórn Alþýðusambands Íslands, ASÍ, lýsir þungum áhyggjum af stöðu heilbrigðismála í landinu og fordæmir forgangsröðunina sem sögð er birtast í fjárlagafrumvarpi ríkisstjórnar Katrínar Jakobsdóttur.

„Dag hvern berast fregnir af ófremdarástandi í heilbrigðiskerfi landsmanna. Þrátt fyrir áköll starfsfólks og sérfræðinga hafa stjórnvöld árum saman kosið að leiða hjá sér augljósan vanda og skella skollaeyrum við réttmætum kröfum almennings um úrbætur,“ segir meðal annars í tilkynningu.

Þá segir ASÍ að Sjúkratryggingar Íslands standi ekki undir nafni þar sem landsmenn fái ekki þá þjónustu sem greitt er fyrir.

Krefjast þess að brugðist verði við ástandinu

ASÍ minnir á að formaður Læknafélags Íslands hafi nýlega varað við neyðarástandi í heilbrigðiskerfinu vegna manneklu, en Steinunn Þórðardóttir sagði í samtali við mbl.is á dögunum að það væri „skortur hvert sem litið er í kerfinu“.

https://secure.mbl.is/mm/siddi//news/view.html?news_id=2610666

https://secure.mbl.is/mm/siddi//news/view.html?news_id=2609219

Miðstjórn ASÍ kveðst krefjast þess að stjórnvöld sýni ábyrgð og bregðist þegar við alvarlegri stöðu heilbrigðismála og yfirvofandi neyðarástandi.

„Samkvæmt upplýsingum frá embætti landlæknis eru biðlistar óviðunandi í flestum aðgerðaflokkum. Þetta ástand er með öllu óboðlegt og minnir miðstjórn á að heilsu og velferð fjölda fólks er beinlínis ógnað sökum forgangsröðunar stjórnvalda.“

Þá hafnar miðstjórnin því að aukin einkavæðing sé lausn við vandanum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert