Skýra þarf aðkomu náinna aðstandenda

Umboðsmaður taldi ekki forsendur til að gera athugasemdir við niðurstöðu …
Umboðsmaður taldi ekki forsendur til að gera athugasemdir við niðurstöðu ráðuneytisins en af þessu leiddi þó óhjákvæmilega að aðstandendur í svona stöðu nytu ekki þess réttaröryggis sem málsmeðferðarreglur stjórnsýsluréttar tryggðu. mbl.is/Kristinn Magnússon

Umboðsmaður Alþingis bendir dómsmálaráðherra á að taka til athugunar hvort rétt kunni að vera að skýra betur aðkomu náinna aðstandenda að málefnum lögræðissviptra svo og persónulegan rétt þess lögræðissvipta til kæru.

Tilefni ábendingarinnar er kvörtun frá kjörbörnum konu sem svipt var fjárræði að þeirra frumkvæði. Eftir að móður þeirra var skipaður lögráðamaður kröfðust börnin þess annars vegar að henni yrði skipaður nýr lögráðamaður og hins vegar að yfirlögráðandi tæki aftur upp mál sem hann hafði samþykkt tilteknar ráðstafanir lögráðamannsins í. Úrskurðir dómsmálaráðuneytisins í báðum málunum byggðust á að börnin ættu ekki aðild að þessum málefnum móður sinnar, að því er segir á vef umboðsmanns. 

Aðstandendur njóta ekki réttaröryggis

Fram kemur, að umboðsmaður taldi ekki forsendur til að gera athugasemdir við niðurstöðu ráðuneytisins en af þessu leiddi þó óhjákvæmilega að aðstandendur í svona stöðu nytu ekki þess réttaröryggis sem málsmeðferðarreglur stjórnsýsluréttar tryggðu. Við þessar aðstæður væri eftirlit með ákvörðunum og ráðstöfunum yfirlögráðanda einskorðað við þær aðgerðir sem dómsmálaráðuneytið gæti gripið til á grundvelli yfirstjórnar - og eftirlitsheimilda sinna.

Benti umboðsmaður á að í norskum lögræðislögum er mælt fyrir um að maki eða sambúðarmaki verði ekki skipaður lögráðamaður ef börn hins lögræðissvipta, sem ekki eru börn makans eða sambúðarmakans, eru mótfallin því og með sama hætti skuli tekið tillit til sjónarmiða maka eða sambúðaraðila ef til greina komi að skipa barn hins lögræðissvipta sem lögráðamann.  

Ýmislegt óljóst

Þá yrði ekki annað séð en óljóst væri hvernig kæruheimild manns væri háttað þegar hann hefði verið sviptur sjálfræði og skipaður lögráðamaður, því ákvörðun um kæru væri þá hjá þeim síðarnefnda. Enn fremur væri ekki ljóst af lögræðislögum hvort sú staða sem maka eða sambúðarmaka væri veitt við val á lögráðamanni geti leitt til aðildar hans að kærumáli vegna slíkrar ákvörðunar, segir á vef embættisins. 

Í ábendingu umboðsmanns felst engin afstaða til þess hvernig eiga að skipa þessum málum heldur bent á mikilvægi þess að lagareglur séu skýrar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert