Aflýsa óvissustigi vegna veðurs

mbl.is/Þorgeir Baldursson

Ríkislögreglustjóri, í samráði við lögreglustjóra á Norðurlandi vestra og Norðurlandi eystra, aflýsir óvissustigi almannavarna vegna veðurs sem gekk yfir umdæmin um helgina. Engar veðurviðvaranir eru nú í gildi á þessum svæðum.

Áfram gildir almannavarnastig í umdæmum lögreglustjóranna á Austurlandi og Suðurlandi.  Þar eru í gildi veðurviðvaranir út daginn í dag og er fólk hvatt til þess að fylgjast vel með veðri og færð á þessum slóðum, að því er segir í tilkynningu frá almannavörnum. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert