Fer fram á 18-20 ára fangelsi

Angj­el­in Sterkaj, sem sést hér fyrir miðri mynd, hlaut 16 …
Angj­el­in Sterkaj, sem sést hér fyrir miðri mynd, hlaut 16 ára dóm í fyrra fyrir manndráp. mbl.is/Kristinn Magnússon

Ákæruvaldið hefur farið fram á þyngri refsingu yfir Ang­elj­in Sterka­sj, sem var dæmdur fyrir að hafa orðið Armando Beqirai að bana við heimili sitt í Rauðagerði í Reykjavík í fyrra. Sterkaj hlaut 16 ára dóm en ákæruvaldið fer fram á 18-20 ára dóm. 

Þetta kemur fram á vef Rúv, en aðalmeðferð fór fram í málinu í dag í Landsrétti, en ríkissaksóknari áfrýjaði í nóvember sl. dómi Héraðsdóms Reykjavíkur sem féll 21. október í fyrra. 

Sterkaj hlaut 16 ára fang­elsi fyr­ir morðið á Beqirai, sem fyrr segir, en þau Sheptim Qerimi, Claudia Sofia Coel­ho Car­val­ho og Murat Selivrada voru sýknuð af kröf­um ákæru­valds­ins.

Málið allt var mjög um­fangs­mikið og tók aðalmeðferð þess fyr­ir héraðsdómi tals­verðan tíma. Lög­reglu­skýrsla um málið taldi um 2.000 blaðsíður og vitn­in sem komu fyr­ir dóm­ara við aðalmeðferðina skiptu tug­um.

Angj­el­in Sterkaj var eini sak­born­ing­ur­inn sem hafði þegar játað að hafa orðið Arm­ando Beqirai að bana þann 13. fe­brú­ar síðastliðinn að heim­ili þess síðar­nefnda í Rauðagerði. Angj­el­in seg­ir að morðið á Arm­ando hafi verið nauðvörn.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert