Kóresk flugvél keyrði á vél Icelandair

Flugvél Korean Air klessti á vél frá Icelandair við akstur …
Flugvél Korean Air klessti á vél frá Icelandair við akstur á flugbrautinni á Heathrow-flugvelli. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Tvær farþegaflugvélar skullu saman á akbrautinni á Heathrow-flugvelli í London rétt í þessu.

Samkvæmt fyrstu fregnum keyrði Boeing 777-flugvél Korean Air á Boeing 757-flugvél Icelandair við akstur á flugbrautinni.

Breska blaðið Daily mail greinir frá þessu.

Viðbragðsaðilar flýttu sér að vélunum eftir að áreksturinn átti sér stað en ekki er talið að neinn hafi slasast við atvikið. Talið er að vængur vélar Korean Air hafi rekist á vél Icelandair og skrapað vélina við það. 

Hér fyrir neðan má sjá myndskeið af viðbragðsaðilum á flugbrautinni en viðbúnaður er þó nokkur.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert