Saka Rússa um að ræna yfirmanni kjarnorkuvers

Kjarnorkuverið í Saporisjía.
Kjarnorkuverið í Saporisjía. AFP/Stringer

Úkraínumenn hafa sakað rússneskar hersveitir um að ræna og misþyrma háttsettum yfirmanni yfir kjarnorkuverinu í Saporisjíu í suðurhluta Úkraínu. Mun þetta vera annar háttsetti yfirmaður kjarnorkuversins sem Rússar eru sagðir hafa rænt.

Í yfirlýsingu frá kjarnorkumálastofnun Úkraínu segir að Valerí Martinjuk, maðurinn sem rússneskar hersveitir eru sakaðar um að ræna, hafi verið yfirmaður yfir mannauðsdeild í kjarnorkuverinu.

Hefur stofnunin jafnframt kallað eftir því að Rafael Grossi, yf­ir­maður Alþjóðakjarn­orku­mála­stofn­un­ar­inn­ar, sem er nú í heimsókn í Rússlandi, sjái til þess að Martinjuk verði sleppt úr haldi.

Saporisjía-héraðið er eitt fjögurra héraða sem Rússar telja sig hafa innlimað í Rússland. Alþjóðasamfélagið hefur fordæmt ákvörðun Rússa og sagt hana ólögmæta.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert