Kerfið fjársvelt en ráðherra vill knýja fram breytingar

Steinunn Þórðardóttir, formaður Læknafélag Íslands.
Steinunn Þórðardóttir, formaður Læknafélag Íslands. mbl.is/Sigurður Bogi

„Þessi málaflokkur er gríðarlega undirfjármagnaður og við höfum áhyggjur af því að ráðherra nái ekki sínum málum fram að óbreyttu. Það eru ekki fjárheimildir til að ráðast í neitt átak til að bæta stöðuna en það er akkúrat það sem þarf. Það blasir við hverju mannsbarni sem vinnur í þessu heilbrigðiskerfi að það er fjársvelt.

Við bindum auðvitað vonir við að ráðherra nái að knýja fram breytingar, við vitum að hann vill berjast fyrir þeim en höfum áhyggjur af því að hann mæti ekki nægum skilningi,“ segir Steinunn Þórðardóttir, formaður Læknafélags Íslands.

Á aðalfundi Læknafélags Íslands var samþykkt ákall til ríkisstjórnar Íslands vegna ríkjandi neyðarástands í heilbrigðiskerfinu. Willum Þór Þórsson heilbrigðisráðherra ávarpaði gesti fundarins og svaraði fyrirspurnum lækna. „Ráðherra hefur sett sig vel inn í þennan málaflokk og sýnir stöðu okkar skilning,“ segir Steinunn. 

Nánari umfjöllun má nálgast í Morgunblaðinu í dag.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert