31 flutningur á fjórum tímum

Mikið var að gera í sjúkraflutningum hjá slökkviliðinu á höfuðborgarsvæðinu í gærkvöldi, sem fór í alls 31 flutning á fjórum tímum frá klukkan hálfátta til hálftólf.

Dælubílar fóru í eitt útkall en það var afturkallað áður en þeir komust á staðinn, að því er kemur fram á Facebook-síðu slökkviliðsins.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert