Grenivíkurvegur er enn lokaður við Hraná vegna aurskriðu, að því er kemur fram á vef Vegagerðarinnar.
Beðið er eftir nánari upplýsingum sem ættu að berast þegar líða fer á daginn. Hjáleið er um Dalsmynni.
Grenivík: Grenivíkurvegi (83) er enn lokaður við Hraná vegna aurskriðu. Beðið er eftir nánari upplýsingum sem berast vonandi þegar liða fer á daginn. Hjáleið er um Dalsmynni. #færðin
— Vegagerðin | Iceland Roads (@Vegagerdin) November 19, 2022
Eftirlitsmenn frá Veðurstofu munu meta stöðuna á ný í dag og verður vegurinn því lokaður enn um sinn eða þar til Veðurstofan gefur grænt ljós og Vegagerðin lokið sínu hreinsunarstarfi, að sögn lögreglunnar á Norðurlandi eystra.