Villtir fuglar dreifa inflúensu

Mávur með æti.
Mávur með æti. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Inflúensuveirur A dreifast landlægt með stofnum villtra fugla sem ferðast árstíðabundið milli vetrarstöðva á suðlægum breiddargráðum til varpsvæða á norðurslóðum. Þetta kemur fram í nýútkominni fræðigrein í tímaritinu Molecular ecology.

„Niðurstöður rannsóknarinnar sýna að flutningur inflúensuveiru A á norðurslóðum og kaldtempruðu svæðunum endurspeglar ferðalög villtra fugla um jaðar heimskautssvæðisins, einkum stuttar flugleiðir milli nærliggjandi svæða frekar en langflug yfir norðurskautið. Á Íslandi mætast flutningsleiðir veirunnar milli meginlands Evrópu og Norður-Ameríku, í samræmi við farflug villtra fugla frá meginlandi Evrópu til Norðaustur-Kanada og Grænlands. Þrátt fyrir að útbreiðsluhraði veirunnar sé svipaður hjá ólíkum fuglahópum á Íslandi gegna mávar stóru hlutverki í flutningsferlinu,“ segir á vef Náttúrufræðistofnunar.

Hér á Íslandi tengjast farleiðir fugla sem eiga heimkynni við austanvert Atlantshaf og vestanvert hafið í Norður-Ameríku. Hér gefst því einstakt tækifæri til að rannsaka hvað einkennir veiruflutning milli austur- og vesturhvels jarðar. „Lagt var mat á tengingu Íslands við nálæg svæði og skoðað var hvernig inflúensusmit á milli tegunda og myndun nýrra afbrigða hefur áhrif á landfræðilega útbreiðslu veirunnar.“

Niðurstöðurnar eru taldar geta komið að gagni við áætlanagerð og eftirlit með inflúensufaröldrum. 

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert