Ljósleiðari slitinn í landshring Mílu

Frá Höfn á Hornafirði.
Frá Höfn á Hornafirði. mbl.is/Golli

Slit hefur orðið á ljósleiðara í landshring Mílu á Suðausturlandi, milli Hafnar í Hornafirði og Holts á Mýrum.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Mílu.

Þar er tekið fram að samstarfsaðili Mílu á svæðinu sé á leið á staðinn og muni hefja viðgerð um leið og nákvæm staðsetning slits er fundin.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert