SGS og SA náð samkomulagi

Halldór Benjamín Þorbergsson, framkvæmdastjóri SA, Eyjólfur Árni Rafnsson, formaður SA, …
Halldór Benjamín Þorbergsson, framkvæmdastjóri SA, Eyjólfur Árni Rafnsson, formaður SA, Aðalsteinn Leifsson ríkissáttasemjari, Vilhjálmur Birgisson, formaður SGS, og Guðbjörg Kristmundsdóttir, varaformaður SGS, skrifuðu undir kjarasamning síðdegis í dag. Ljósmynd/Samtök atvinnulífsins

Starfsgreinasambandið (SGS) og Samtök atvinnulífsins (SA) hafa náð samkomulagi um nýjan kjarasamning. 

Þetta staðfestir Elísabet S. Ólafsdóttir, skrifstofustjóri hjá ríkissáttasemjara, í samtali við mbl.is. 

17 af 19 aðildarfélögum SGS undirrituðu samninginn í húsakynnum ríkissáttasemjara á fimmta tímanum í dag.

Um er að ræða svokallaðan skammtímasamning en gildistími samningsins er frá 1. nóvember 2022 til 31. janúar 2024.

Þess má geta að þetta er í fyrsta sinn sem kjarasamningur á almennum vinnumarkaði gildir frá sama tíma og sá eldri rennur út og í því eru fólgin mikil verðmæti fyrir launafólk,“ segir í tilkynningu frá SGS. 

Kauptaxtar hækkar um 35 þúsund

Kauptaxtar hækka frá 1. nóvember 2022 um að lágmarki 35.000 kr. Að auki felur samningurinn í sér lagfæringu á launatöflunni, sem gerir það að verkum að hækkun getur orðið allt að 52.000 kr. á mánuði.

Laun þeirra sem ekki taka laun eftir kauptöxtum, þ.e. eru á mánaðarlaunum, hækka um 33.000 kr. frá 1. nóvember.

Desember- og orlofsuppbætur taka jafnframt hækkunum. Desemberuppbót á árinu 2023 verður 103.000 kr. og orlofsuppbót verður 56.000 kr. á orlofsárinu sem hefst 1. maí 2023.

Kjaratengdir liðir samningsins hækka um 5% frá 1. nóvember og þá hækka bónusar og akkorð í fiskvinnslu um 8% sem mun skila fiskvinnslufólki á bilinu 6.000 - 34.000 kr. hækkun á mánuði.

Flýting hagvaxtarauka

Einnig náðist samkomulag um flýtingu hagvaxtarauka sem þýðir að hagvaxtaraukinn sem átti að koma til greiðslu 1. maí 2023 verður flýtt og verður hann að fullu efndur með hækkun 1. nóvember. Það mun skila ávinningi sem nemur 78.000 kr. eða tæpum 6.000 kr. á mánuði á samningstímanum.

Jafnframt var gert samkomulag um að með þessari hækkun og flýtingu komi ekki til frekara endurmats á hagvaxtarauka skv. kjarasamningnum frá 2019.

Samningurinn styðji við kaupmátt launa

Kjarasamningurinn er framlenging á Lífskjarasamningnum sem gilti frá 2019-2022.

„Samningsaðilar eru sammála um að samningurinn styðji við kaupmátt launa auk þess að veita heimilum og fyrirtækjum fyrirsjáanleika á miklum óvissutímum. Samningurinn geti þannig byggt undir stöðugleika og skapað forsendur fyrir langtímasamningi.“

Nú tekur við kynning og atkvæðagreiðsla um samninginn meðal félagsmanna.

Tilkynnt verður um afgreiðslu samningsins mánudaginn 19. desember. 

Eftirfarandi félög eiga aðild að samningnum:

AFL Starfsgreinafélag, Aldan stéttarfélag, Báran stéttarfélag, Drífandi stéttarfélag, Eining-Iðja, Framsýn stéttarfélag, Stéttarfélagið Samstaða, Verkalýðs- og sjómannafélag Bolungarvíkur, Verkalýðs- og sjómannafélag Keflavíkur og nágrennis, Verkalýðs- og sjómannafélag Sandgerðis, Verkalýðsfélag Akraness, Verkalýðsfélag Snæfellinga, Verkalýðsfélag Suðurlands, Verkalýðsfélag Vestfirðinga, Verkalýðsfélag Þórshafnar, Verkalýðsfélagið Hlíf og Stéttarfélag Vesturlands.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert