Umferðaróhapp á Kjalarnesi

Vegurinn um Kjalarnes er lokaður.
Vegurinn um Kjalarnes er lokaður. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Vegurinn um Kjalarnes er lokaður vegna umferðaróhapps. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Vegagerðinni. 

Hvasst er á svæðinu og sandfok, því eiga léttir bílar og bílar með aftan-í-vagna ekki erindi þangað sem stendur. 

Varðstjóri slökkviliðsins á höfuðborgarsvæðinu segir í samtali við mbl.is ekki kannast við málið og að viðbragðsaðilar frá þeim séu ekki á svæðinu. 

Uppfært 18:09

Fulltrúi Vegagerðarinnar segir veginn um Kjalarnes nú opinn, en honum var lokað frá 16:13-17:24 að sögn hans. 

Fréttin hefur verið uppfærð.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert