Allt að klukkutíma bið eftir sjúkrabíl

Mikið álag hefur verið á starfsmönnum slökkviliðsins á höfuðborgarsvæðinu í …
Mikið álag hefur verið á starfsmönnum slökkviliðsins á höfuðborgarsvæðinu í dag. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Mikið álag hefur verið á sjúkraflutningamönnum á höfuðborgarsvæðinu í dag en þegar mest lét voru tíu bílar úti á sama tíma.

„Það er búið að vera ótrúlega mikið að gera,“ segir Bjarni Ingimarsson, varðstjóri hjá slökkviliði höfuðborgarsvæðisins, sem tekur fram að fólk gæti þurft að bíða í allt að klukkutíma eftir sjúkrabíl.

Útköllum sé þó auðvitað forgangsraðað eftir alvarleika.

Leki í kjallara 

Þá barst slökkviliðinu útkall í morgun vegna vatsnleka í skjalageymslu í húsnæði héraðsdóms þegar að ofn í kjallaranum gaf sig.

Voru sex starfsmenn að í tvo klukkutíma við að hreinsa upp vatnið og tóku þá umsjónarmenn hússins og fulltrúar frá tryggingarfélaginu við.

Bjarni segir að um minniháttar eignatjón sé að ræða.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert