Borgarbúar hvattir til að skilja bílinn eftir heima

Gert er ráð fyrir áframhaldandi hægviðri og frosti í dag …
Gert er ráð fyrir áframhaldandi hægviðri og frosti í dag og umtalsverðar líkur á því að styrkur köfnunarefnisdíoxíðs fari yfir sólarhringsheilsuverndarmörk við Grensásveg. mbl.is/Kristinn Magnússon

Styrkur köfnunarefnisdíoxíðs (NO2) mælist mikill í borginni í dag samkvæmt mælingum í mælistöðinni við Grensásveg. Því eru borgarbúar hvattir til að draga úr notkun einkabílsins við þessar aðstæður.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Reykjavíkurborg þar sem segir að klukkan 15 hafi klukkutímagildi köfnunarefnisdíoxíðs við Grensásveg mælst 202,9 míkrógrömm á rúmmetra. Leyfilegt klukkustundargildi er 200 míkrógrömm á rúmmetra.

Búast má við háum gildum í nálægð við stórar umferðargötur.

Efnið kemur frá útblæstri bifreiða og er að jafnaði mest á morgnana og í eftirmiðdaginn þegar umferð er þung. Þegar það eru froststillur helst mengunarskýið lengur en venjulega yfir borginni og gildi geta verið há stóran hluta úr degi.

Viðvarandi ástand

Gert er ráð fyrir áframhaldandi hægviðri og frosti í dag og umtalsverðar líkur á því að styrkur köfnunarefnisdíoxíðs fari yfir sólarhringsheilsuverndarmörk við Grensásveg,“ segir í tilkynningunni. Spáð er svipuðu veðri áfram næstu daga og því mögulegt gæti ástandið orðið viðvarandi. 

Almenningur er því hvattur til þess að draga úr notkun einkabílsins við þessar aðstæður, vinna fjarvinnu, nýta sér frekar almenningssamgöngur, sameinast í bíla eða nota aðra vistvæna samgöngumáta. 

Þeir sem eru viðkvæmir fyrir í öndunarfærum, aldraðir og börn ættu að forðast útivist í lengri tíma og takmarka áreynslu í nágrenni stórra umferðargatna.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert