Auðu rýmin kalla á endurskoðun

Ósk um að innrétta gistirými á jarðhæð í Arnarhlíð 2 …
Ósk um að innrétta gistirými á jarðhæð í Arnarhlíð 2 var synjað. mbl.is/sisi

Helgi Áss Grétarsson varaborgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins hyggst í dag leggja fram tillögu um fjölbreyttari notkun jarðhæða á þéttingarreitum í borginni. Nánar tiltekið atvinnurýma á jarðhæð sem ætluð eru undir verslun og þjónustu.

Helgi Áss segir að tilefnið sé ekki síst fjöldi auðra atvinnurýma á jarðhæð nýrra fjölbýlis­húsa á Hlíðarenda. Þar sé eftir­spurnin ekki í takt við framboðið sem orðið sé verulegt.

Vill skapa umræðu

„Varðandi Hlíðarendahverfið þá er tilgangur tillögunnar að fá umræðu um stöðuna ásamt því að benda á dæmi, bæði nýleg og úr sögunni, þar sem skortur á að tengja saman íbúðabyggð og verslun veldur vanda í skipulagsmálum borgarinnar,“ segir Helgi Áss og nefnir fleiri dæmi.

Lesa má meira um málið í Morgunblaðinu í dag. 

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert