Tvær bifreiðar skullu saman í Hafnarfirði

Slysið varð við Reykjavíkurveg.
Slysið varð við Reykjavíkurveg. mbl.is/Arnþór

Tveir voru fluttir til skoðunar á Landspítalann eftir að tvær bifreiðar skullu saman á Reykjavíkurvegi í Hafnarfirði í dag. 

Varðstjóri hjá slökkviliðinu á höfuðborgarsvæðinu segir að um minniháttar slys hafi verið að ræða en að dælubíll hafi verið sendur á vettvang til þess að hreinsa brak.

Tilkynning um slysið barst fyrir rúmum klukkutíma en ekki var hægt að fá upplýsingar um hvernig það atvikaðist.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert