Anton Guðjónsson
Öllu innanlandsflugi sem átti að vera í dag hefur verið aflýst. Þetta kemur fram á heimasíðu Isavia.
Guðjón Helgason, upplýsingafulltrúi Isavia, segir í samtali við mbl.is að lokunin, að minnsta kosti á flugi til og frá Reykjavíkurflugvelli, sé vegna mikillar ókyrrðar í lofti.
Ekki hefur verið nein röskun á millilandaflugi vegna þessa.