Vegagerðin aðstoðaði ökumenn við að losa bíla

Bílar festust á veginum yfir Fagradal í morgun.
Bílar festust á veginum yfir Fagradal í morgun. Ljósmynd/Steinunn Ásmundsdóttir

Bílar lentu í vandræðum á veginum yfir Fagradal í morgun og var veginum lokað í framhaldinu. 

Frá þessu er greint hjá Austurfréttum en þar segir að Vegagerðin hafi aðstoðað fólk við að losa bílana. 

Fleiri leiðum var lokað í dag eins Möðrudalsöræfum, Vopnafjarðarheiði og Vatnsskarði. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert