Tveir fluttir á slysadeild eftir umferðarslys

Tveir voru fluttir með sjúkrabíl á slysadeild.
Tveir voru fluttir með sjúkrabíl á slysadeild. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Tveir voru fluttir með sjúkrabíl til aðhlynningar á slysadeild í dag eftir umferðarslys við Kringluna.

Tilkynning um slysið barst um klukkan sex í dag en að sögn varðstjóra hjá slökkviliðinu á höfuðborgarsvæðinu var um aftanákeyrslu að ræða.

Eru bílarnir báðir óökuhæfir eftir slysið.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert