Tekist á um rafvarnarvopn á Alþingi

Jón Gunnarsson dómsmálaráðherra segir aðdraganda ákvörðunar um að heimila lögreglu …
Jón Gunnarsson dómsmálaráðherra segir aðdraganda ákvörðunar um að heimila lögreglu að hefja undirbúning að því að taka í notkun rafvarnarvopn hafa verið langan. mbl.is/Árni Sæberg

Arndís Anna Kristínardóttir Gunnarsdóttir, þingmaður Pírata, gagnrýndi ákvörðun dómsmálaráðherra í óundirbúnum fyrirspurnartíma á Alþingi í dag um að heimila lögreglu að hefja undirbúning að því að taka í notkun rafvarnarvopn.

„Rafbyssur eru tæki sem ætlað er að stöðva einstaklinga sem sýna lögreglu ógnandi hegðun eða óhlýðni við tilmælum lögreglu. Dómsmálaráðherra hefur nú ákveðið með einu pennastriki að vopna almenna lögreglumenn slíkum vopnum,“ segir hún.

Hún segir dómsmálaráðherra hafa tekið ákvörðunina án aðkomu ríkisstjórnar og án lýðræðislegs samtals við þing og þjóð.

„Lítið hefur hins vegar heyrst frá dómsmálaráðherra um hvernig farið skuli með áhættuna á því að nota slík vopn á almenna borgara, annað en að samkvæmt regludrögum ráðherra megi ekki beita rafbyssum gegn einstaklingum í áberandi slæmu líkamlegu ástandi eða konum sem eru augljóslega þungaðar.

Ég viðurkenni að þetta orðalag sló mig. Getur verið það sé ætlun ráðherra að leyfilegt sé að nota rafbyssur gegn einstaklingum sem eru í sérstökum áhættuhópi svo lengi sem það er ekki augljóst?“

Arndís Anna Kristínardóttir Gunnarsdóttir, þingmaður Pírata.
Arndís Anna Kristínardóttir Gunnarsdóttir, þingmaður Pírata. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Ákvörðunin var í burðarliðnum

Arndís Anna sagði að erlendis væri vitað um dæmi þar sem almennir borgarar hefðu hlotið alvarlegan skaða eða látist vegna notkunar lögreglu á rafbyssum.

„Notkun lögreglu á rafbyssum við handtökur erlendis hefur gjarnan verið bendluð við andlát fólks í svokölluðu æsingsóráði.

Af þessu tilefni spyr ég hæstvirtan dómsmálaráðherra, hvernig ætlar ráðherra að tryggja að rafbyssum verði ekki beitt gegn fólki með alvarleg geðræn vandamál, með fíknivanda eða undirliggjandi sjúkdóma, með gangráð t.d., eða gegn óléttum konum sem eru ekki augljóslega þungaðar,“ sagði Arndís Anna.

Jón Gunnarsson, dómsmálaráðherra, svaraði þeirri gagnrýni að ákvörðunin hafi verið tekin án undanfarandi samtals við þingið og aðra, og sagði hana hafa verið tekna eftir mjög vandaðan undirbúning. „Eftir mjög langan aðdraganda, þar sem það hefði í raun og ekki þurft að fara framhjá neinum að þessi ákvörðun var í burðarliðnum,“ sagði ráðherra.

„Þessi ákvörðun er fyrst og fremst tekin á grundvelli þess að auka á öryggi lögreglumanna. Og það er fullt tilefni til,“ sagði hann og bætti við að staðan í störfum lögreglunnar hefur orðið alvarlegri heldur en hún var fyrir örfáum árum.

Hann sagði að miðað við reynslu annarra þjóða sem við berum okkur saman við að upplifun þeirra sé jákvæð af rafvarnarvopnum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert