Flýta lagningu á nýjum Vestmannaeyjastreng

Í síðustu viku bilaði Vestmannaeyjastrengur 3.
Í síðustu viku bilaði Vestmannaeyjastrengur 3. mbl.is/Sigurður Bogi

Ákveðið hefur verið að flýta lagningu og umsókn um leyfi send til Orkustofnunnar á nýjum Vestmannaeyjastreng 4.

Þetta kemur fram í tilkynningu á vef Landsnets en í síðustu viku bilaði Vestmannaeyjastrengur 3. Er það í annað sinn sem hann bilar á þeim tíu árum sem hann hefur verið í notkun. Undirbúningur fyrir viðgerð á honum er nú í gangi. 

Áætlað er að nýi sæstrengurinn verða lagður sumarið 2025 í stað 2027 og mun hann verða 66 kV og sambærilegur við Vestmanneyjastreng 3.

Engin varatenging kosti 100 milljónir árlega 

Í tilkynningunni segir að búið sé að framkvæma greiningu á samfélagslegum kostnaði við það að hafa eingöngu einn sæstreng til Vestmannaeyja sem annað getur bæði forgangs- og skerðanlegri orkuþörf í Eyjum. 

„Greiningin sem unnin var af verkfræðistofunni Eflu í árslok 2022 sýndi að samkvæmt áhættumati er væntur samfélagslegur kostnaður við að hafa ekki varatengingu sem annað getur allri orkuþörf í Vestmannaeyjum nálægt 100 milljónum árlega.“

Þá segir að flýting Vestmannaeyjastreng 4 komi sér einnig vel við ná fram samlegðaráhrifum í framkvæmdum Landsnets en lagning sæstrengs yfir Arnarfjörð er einnig á framkvæmdaáætlun.

Með því að leggja báða þessa sæstrengi á sama tíma má spara kostnað við strenglagningarskip sem þarf að fá til landsins í verkið og getur sparnaðurinn hlaupið á hundruðum milljóna.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert