Stór skjálfti í Bárðarbungu

Bárðarbunga er öflugusta eldstöð landsins.
Bárðarbunga er öflugusta eldstöð landsins. Landhelgisgæslan/TF-SIF

Klukkan 8.41 í morgun mældist jarðskjálfti af stærðinni 4,8 í Bárðarbungu og hafa nokkrir eftirskjálftar mælst.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá náttúruvásérfræðingi hjá Veðurstofu Íslands en síðast varð skjálfti þar af svipaðri stærð í júlí 2022 sem mældist 4,9 að stærð. Þar áður varð skjálfti í febrúar 2022 af stærðinni 4,8. 

Veðurstofunni barst tilkynning um að skjálftans hefði orðið vart á Akureyri.

„Undanfarin ár hafa ávallt mælst nokkrir skjálftar í Bárðarbungu af þessari stærðargráðu á hverju ári,“ segir í tilkynningunni. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert