Hótel, baðlón og heilsulind við Langasand

Guðlaug og Langisandur.
Guðlaug og Langisandur. Ljósmynd/Aðsend

Akraneskaupstaður, Ísold fasteignafélag, Íþróttabandalag Akraness (ÍA) og Knattspyrnufélag Akraness undirrituðu í morgun viljayfirlýsingu um uppbyggingu við Langasand.

Í henni felst að byggt verði hótel, baðlón og heilsulind á svæðinu. Jafnframt er lýst yfir samstarfi um stefnumörkun í ferðaþjónustu á Akranesi. Þá er einnig áformuð uppbygging á svæði ÍA þar sem m.a. verða nýir knattspyrnuvellir fyrir félagið og stórbætt aðstaða fyrir iðkendur og íbúa.

„Svæðið er einstaklega skemmtilegt og býður nálægðin við Langasand, Guðlaugu og íþróttasvæði ÍA upp á spennandi möguleika og fáir staðir sem bjóða upp á ljósa sandfjöru sem snýr á móti suðri,“ segir í tilkynningu.

Fyrst hefst vinna við að greina tækifæri í ferðaþjónustu og að móta stefnu á því sviði. Áætlað er að þeim fasa ljúki innan fjögurra mánaða. Eftir það hefjist vinna við deiliskipulag og aðra slíka þætti. Mikil áhersla verður lögð á samráð og samtal við bæjarbúa og hagsmunaaðila.

Frá undirritun viljayfirlýsingarinnar í morgun.
Frá undirritun viljayfirlýsingarinnar í morgun. Ljósmynd/Aðsend

„Mjög metnaðarfullar hugmyndir“

„Hér er verið að fara í gang með mjög metnaðarfullar hugmyndir um uppbyggingu í ferðaþjónustu sem okkur hefur skort á Akranesi, en auk þess getum við bætt enn frekar aðstöðu fyrir íþróttastarfið hjá okkur. Þetta eru mikilvæg skref fyrir áframhaldandi vöxt Akraness og ti lað auka enn við þjónustu og upplifun á þessu fallega svæði sem gegnir lykilhlutverki í lífi Akurnesinga,“ segir Sævar Þráinsson, bæjarstjóri á Akranesi, í tilkynningunni.

Aðalsteinn Jónsson hjá Ísold fasteignum bætir við í tilkynningunni: „Við hjá Ísold hlökkum til að byggja upp hótel og baðlón með fjölbreyttri þjónustu hér á þessu frábæra svæði og taka þannig þátt í að efla og byggja upp á Akranesi og um leið að styðja við ÍA. Við getum varla beðið eftir því að hefjast handa við fyrstu verkefnin,“ segir Aðalsteinn.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert