Kalla inn fæðubótarefni

Fæðubótarefnið inniheldur 1000 mg af ashwagandha (Withania somnifera) extrakti í …
Fæðubótarefnið inniheldur 1000 mg af ashwagandha (Withania somnifera) extrakti í ráðlögðum daglegum neysluskammti. Ljósmynd/Aðsend

Leanbody ehf., að höfðu samráði við Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur, hefur innkallað frá neytendum fæðubótarefnið Ashwagandha KSM-66 frá CNP. 

Í tilkynningu á vef Reykjavíkurborgar kemur fram að fæðubótarefnið innihaldi 1000 mg af ashwagandha extrakti í ráðlögðum daglegum neysluskammti sem fer yfir þau mörk sem Matvælastofnun telur örugg til neyslu, eða 450 mg á dag.

Matvæli sem innihalda ashwagandha extrakt yfir mörkum eru ekki örugg og geta verið heilsuspillandi, að því er segir í tilkynningunni.

Neytendur sem eiga umrædda vöru eru beðnir um að neyta hennar ekki og farga en einnig er hægt að skila henni í verslun Leanbody ehf., Glæsibæ.

Upplýsingar um vöru sem innköllunin einskorðast við:

Vörumerki: CNP

Vöruheiti: Ashwagandha KSM-66 Ashwagandha

Geymsluþol: Best fyrir  Dagsetning: Allar best fyrir dagsetningar

Strikamerki: 5060547312047

Framleiðandi: CNP Professional Unit 11

Framleiðsluland: Bretland

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert