Ríkislögreglustjóri mun ekki tjá sig

Sigríður Björk Guðjónsdóttir ríkislögreglustjóri og Karl Ingi Vilbergsson hjá embætti …
Sigríður Björk Guðjónsdóttir ríkislögreglustjóri og Karl Ingi Vilbergsson hjá embætti héraðssaksóknara. Samsett mynd

Embætti ríkislögreglustjóra mun ekki tjá sig um hryðjuverkamálið á meðan það er á borði héraðssaksóknara að sögn Gunn­ars Harðar Garðarss­onar, sam­skipta­stjóra rík­is­lög­reglu­stjóra.

Lands­rétt­ur staðfesti í dag úr­sk­urð héraðsdóms um að vísa frá hryðju­verka­mál­inu svo­kallaða. Er það gert í ljósi þess að mikl­ir ágall­ar eru á til­grein­ingu hinn­ar ætluðu refsi­verðu hátt­semi þeirra Sindra Snæs Birg­is­son­ar og Ísi­dórs Nathans­sonar.

„Það er eitthvað sem embættið og Sigríður munu ekkert kommenta á, það er mál sem er bara hjá héraðssaksóknara enda á hans forræði,“ segir Gunnar í samtali við mbl.is.

„Hún sjálf mun svo náttúrulega ekkert kommenta á þetta mál út af því að hún sagði sig frá því vegna beinna hagsmunatengsla út af föður sínum.“

Gunnar Hörður Garðarsson sam­skipta­stjóri rík­is­lög­reglu­stjóra.
Gunnar Hörður Garðarsson sam­skipta­stjóri rík­is­lög­reglu­stjóra.

Væri óábyrgt að tjá sig

Gunnar segir að embætti ríkislögreglustjóra muni heldur ekki tjá sig um hvort of brátt hafi verið farið af stað þegar hryðjuverkamálið var kynnt í fjölmiðlum.

„Það er eitthvað sem við munum ekkert tjá okkur um fyrr en það er komin lykt í málið, það væri óábyrgt að fara að tjá sig um einhverja þætti málsins, sama hverjir þeir eru, á meðan það er enn þá hjá öðru embætti sem ber ábyrgð á því.“

Gunnar segir ekki útilokað að embættið muni tjá sig þegar endanleg niðurstaða verður komin í málinu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert