Þriggja bíla árekstur við Sæbraut

Laust fyrir kl.17 í dag varð þriggja bifreiða árekstur við …
Laust fyrir kl.17 í dag varð þriggja bifreiða árekstur við Sæbraut og Dalbraut. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Þriggja bíla árekstur varð við Sæbraut og Dalbraut laust fyrir klukkan 17 í dag. Miklar skemmdir urðu á ökutækjum og eru sum óökufær, að því er fram kemur í dagbók lögreglu.

Þetta kemur fram í dagbók lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. 

Ökumenn hlutu minniháttar áverka, samkvæmt fyrstu upplýsingum.

Uppfært klukkan 17.40

Fjórir voru fluttir á slysadeild með minniháttar áverka, samkvæmt upplýsingum frá slökkviliðinu. Þá var einn dælubíll sendur á vettvang.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert