Umferðaróhapp er hjólbarði losnaði

Rétt fyrir klukkan hálf ellefu í gærkvöldi varð umferðaróhapp á Suðurlandsvegi við Heiðmörk þegar jeppabifreið missti framhjólbarða undan bifreiðinni.

Í dagbók lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu segir að hjólbarðinn hafi hafnað á bifreið sem kom á móti úr gagnstæðri átt.

Bifreiðin varð fyrir miklum skemmdum og þurfti að fjarlægja hana með dráttarbifreið af vettvangi. Engin slys urðu á fólki.

Þá varð umferðarslys í Vesturbænum rétt eftir klukkan eitt í nótt þar sem bifreið var ekið á tvær kyrrstæðar bifreiðar sem voru mannlausar.

Ökumaður bifreiðarinnar var fluttur á bráðamóttöku með sjúkrabifreið til aðhlynningar.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert