Heildarlosun á Íslandi aukist um 6% frá 1990

Losun gróðurhúsalofttegunda hérlendis hefur aukist um 6% frá árinu 1990.
Losun gróðurhúsalofttegunda hérlendis hefur aukist um 6% frá árinu 1990. AFP

Heildarlosun gróðurhúsalofttegunda á Íslandi var 14,1 milljón tonn af CO2-ígildum árið 2021 og hefur hún aukist um 6% frá árinu 1990.

Losun fór almennt vaxandi á árunum 1990 til 2008. Eftir efnahagshrunið dróst losun saman á árunum 2008-2011 en hélst eftir það nokkuð stöðug til ársins 2020 þegar hún dróst verulega saman í kjölfar heimsfaraldurs.

Frekari aukning á þessu ári

Frá 2020 til 2021 jókst losunin og gert er ráð fyrir frekari aukningu á þessu ári, að því er kemur fram í tilkynningu frá Umhverfisstofnun.

Núverandi framreikningar sýna samdrátt til lengri tíma í heildarlosun sem nemur að meðaltali 0,6% á ári milli 2021 og 2050.

Árið 2030 er gert ráð fyrir að losun verði 13,4 milljón tonn CO2-íg.

Árið 2040 er gert ráð fyrir að losun verði 12,5 milljón tonn CO2-íg.

Árið 2050 er gert ráð fyrir að losun verði 11,7 milljón tonn CO2-íg.

„Þessir framreikningar byggja m.a. á spám um þróun mannfjölda, eldsneytisnotkun og verga landframleiðslu og á aðgerðum úr Aðgerðaáætlun Íslands í loftslagsmálum. Vert er að nefna að niðurstöður framreikninga Umhverfisstofnunar taka aðeins til þeirra aðgerða sem unnt var að meta. Líklegt þykir að þegar fleiri aðgerðir taka á sig skýrari mynd muni þær hafa þau áhrif að framreiknaður samdráttur aukist,” segir í tilkynningunni.

Ítarlega verður fjallað um þessar tölur á Loftslagsdeginum 4. maí í Hörpu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert