Samstarf við Japan í jarðhitamálum

Guðlaugur Þór Þórðarson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra, og Yasutoshi Nishimura, …
Guðlaugur Þór Þórðarson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra, og Yasutoshi Nishimura, efnahagsmálaráðherra Japans. Ljósmynd/Stjórnarráðið

Komið verður á fót formlegu samstarfi Íslands og Japans á sviði jarðhitamála. Yfirlýsing þessa efnis var undirrituð af Guðlaugi Þór Þórðarsyni, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra og Yasutoshi Nishimura, efnahagsmálaráðherra Japans, á fundi þeirra í Reykjavík sl. sunnudag.

Á fundi ráðherranna kom fram að japönsk stjórnvöld vilja efla nýtingu jarðhita heima fyrir, sem lið í hreinum orkuskiptum. Japanir vilja skoða reynslu og þekkingu Íslendinga á því sviði og koma á tengslum sérfræðinga og fyrirtækja, að því er segir í tilkynningu á vef Stjórnarráðsins.

Guðlaugur Þór sagði að Ísland og Japan byggju að áratuga góðu samstarfi á vettvangi viðskipta, menningar og á öðrum sviðum. Mikilvægt væri að lýðræðisríki styrktu samstarf sitt enn frekar á erfiðum tímum. Loftslagsváin sé risastór áskorun fyrir heimsbyggðina og í baráttu gegn henni felist tækifæri til samstarfs. Japanskar túrbínur séu notaðar í íslenskum jarðhitavirkjunum; saman búi ríkin tvö yfir mikilli reynslu, þekkingu og tækni á sviði jarðvarmanýtingar. Aukið samstarf í framtíðinni gagnist báðum ríkjum, segir enn fremur í tilkynningu. 

Nishimura sagði að hann hefði komið til Íslands gagngert til að kynna sér reynslu Íslands af nýtingu jarðhita og endurnýjanlegrar orku. Japanir vilji gjarnan kynna sér þekkingu Íslendinga m.a. á sviði vetnismála og niðurdælingar koldíoxíðs, en rétt skref væri að byrja á auknu samstarfi tengdu jarðhita.

Heimsókn Nishimura kemur í kjölfar heimsóknar Guðlaugs Þórs til Japans í mars sl., þar sem hann átti m.a. fundi með umhverfisráðherra og aðstoðarefnahagsráðherra Japans og tók þátt í þingi Hringborðs Norðurslóða í Tókýó.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert