Þetta eru líklegir fyrirboðar Kötlugoss

Katla. Á fyrsta degi Kötlugoss af meðalstærð getur gosmökkur náð …
Katla. Á fyrsta degi Kötlugoss af meðalstærð getur gosmökkur náð meira en 14 kílómetra hæð. mbl.is/RAX

Þensla, jarðskjálftavirkni og aukinn jarðhiti, sem kæmi fram í stækkun sigkatla, eru líklegir fyrirboðar Kötlugoss. Líklegt þykir einnig að ákafrar skjálftahrinu yrði vart, áður en gos brytist út úr Mýrdalsjökli.

Síðan mælingar hófust hefur ekki gosið í Kötlu, svo staðfest sé.

Þegar litið er til fyrri eldgosa er vitað til þess að skjálftar hafi fundist sunnan Mýrdalsjökuls, um 2-10 klukkustundum áður en sést hefur til gosmakkar upp úr jöklinum, eða jökulhlaupa orðið vart á Mýrdalssandi.

Þetta kemur fram í íslensku eldfjallavefsjánni, sem Veðurstofan og Jarðvísindastofnun HÍ halda úti.

Í morgun hófst hrina jarðskjálfta í Mýrdalsjökli, sú öflugasta sem orðið hefur þar í sjö ár.

Getur náð meira en 14 kílómetra hæð

Tekið er fram í vefsjánni að viðvörunartími með nútíma mælitækni sé óþekktur, en samkvæmt heimildum nemi hann 1-6 klukkustundum áður en eldgos brýst upp úr ísnum og myndar gosmökk.

Á fyrsta degi Kötlugoss af meðalstærð getur gosmökkur náð meira en 14 kílómetra hæð. Ákaft gjóskufall myndi einnig hefjast innan fárra klukkustunda og almyrkt yrði á nærliggjandi svæðum, eða innan um 40 kílómetra.

Gera mætti ráð fyrir víðtæku gjóskufalli fyrstu dagana sem gæti náð til meginlands Evrópu. Þykkt nýfallinnar gjósku í 25-30 km fjarlægð frá eldstöðinni gæti þá náð allt að 30 sentimetrum.

Stór hluti þjóðvegar 1 grefst í sundur

Stórt jökulhlaup kæmi undan jökli um sama leyti og gosmakkar yrði vart. Jökulhlaupin geta borið með sér feiknastór ísstykki og gríðarmikið setmagn, að mestu gosefni, að því er fram kemur í vefsjánni.

„Stór hluti þjóðvegar 1 grefst í sundur og verður ófær meðan á eldgosi stendur og um tíma eftir goslok. Framburður sem jökulhlaup skilja eftir gæti hækkað hluta svæðis sem þau fara yfir um nokkra metra,“ segir þar.

Ströndin þar sem hlaup renna í sjó gæti færst suður út í sjó um nokkra kílómetra, þegar óseyri myndast.

Mestar líkur, eða 85-89%, þykja á því að jökulhlaup færi til austurs niður á Mýrdalssand. Líkur á að hlaupið fari til suðurs eða vestur eru 4-8% í báðum tilfellum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert