Ók á umferðarskilti og veitti mikla mótspyrnu

mbl.is/Kristinn Magnússon

Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu barst tilkynning um ökumann sem stakk af frá vettvangi eftir að hafa ekið á umferðarskilti í Árbænum. 

Í dagbók lögreglu kemur fram að maðurinn var handtekinn skömmu síðar eftir að hafa veitt mikla mótspyrnu. 

Einnig barst tilkynning um einstakling í Árbænum sem var að ferja annan í skott á bifreið. Við nánari skoðun kom í ljós að um myndatöku var að ræða. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert