Tafir á strætó vegna leiðtogafundar

Búast má við töfum á Strætó vegna leiðtogafundarins í Hörpu.
Búast má við töfum á Strætó vegna leiðtogafundarins í Hörpu. Morgunblaðið/Sigurður Bogi

Strætó mun aka hjáleiðir í kringum götulokanir í miðbæ, en gera má ráð fyrir umferðartöfum um allt höfuðborgarsvæðið og götulokunum í miðbæ Reykjavíkur, vegna leiðtogafundarins í Hörpu frá 15. til 17. maí. 

Í tilkynningu frá Strætó kemur fram að áhrifin verði hvað mest síðdegis á þriðjudeginum og miðvikudeginum vegna aksturs sendinefnda, en gera má ráð fyrir töfum frá klukkan 21 í kvöld til 17. maí klukkan 19.

Farþegar eru hvattir til að fylgjast vel með vögnum á rauntímakorti, en samkvæmt tilkynningu frá Strætó munu leiðir 1, 3, 6 11, 12, 13, 14 og 55  aka hjáleiðir í kringum miðborgina og leið 16 ekur hjáleið um Vatnagarða í stað Sundagarða.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert