Sundabraut lögð yfir öskuhaugana?

Mikið magn sorps var urðað í Gufunesi á sínum tíma …
Mikið magn sorps var urðað í Gufunesi á sínum tíma líkt og gert hefur verið í Álfsnesi undanfarin ár. mbl.is/Árni Sæberg

Við fyrirhugað mat á umhverfisáhrifum Sundabrautar stendur til að skoða mismunandi valkosti að nálgun við gamla sorphauga í Gufunesi, en brautin á að liggja um nesið.

Meðal annars verður skoðað að fara yfir urðunarstaðinn á fyllingu án þess að rjúfa núverandi yfirborð eða sneiða hjá honum.

Umhverfisstofnun hefur áætlað gróflega að í Gufunesi hafi verið urðaðar um fimm milljónir rúmmetra af óflokkuðum úrgangi, þ.m.t. spilliefnum, á árunum 1967-1991. Þá var jafnframt urðaður úrgangur úr holræsum í útjaðri urðunarstaðarins til ársins 2001. Eftir 1984 voru spilliefni sett í sérstaka spilliefnapytti. Nákvæm staðsetning spilliefnapyttanna sé óviss en til er kort sem sýnir nokkurn veginn staðsetningu þeirra. 

Nánari umfjöllun er að finna í Morgunblaðinu í dag.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert