Þrír slasaðir eftir tvö vélhjólaslys á Suðurlandi

Þyrlusveitin var á æfingu skammt frá og gat því brugðist …
Þyrlusveitin var á æfingu skammt frá og gat því brugðist hratt við. mbl.is/Árni Sæberg

Þyrla Landhelgisgæslunnar flutti þrjá á Landspítalann vegna tveggja aðskilinna vélhjólaslysa,. Annað slysið varð klukkan 15 við Búðarháls en hitt varð klukkan 15:45 við Flúðir. 

Að sögn Ásgeirs Erlendssonar, upplýsingafulltrúa Landhelgisgæslunnar, var þyrlusveitin á æfingu skammt frá þegar útkall barst vegna vélhjólaslyss á Búðarhálsi. 

Tveir slösuðust, annar meira en hinn, en þyrlan var fljót á staðinn. 

Þremur korterum seinna barst annað útkall vegna annars vélhjólaslyss, sem átti sér stað á Flúðum. Þar hafði einn slasast og þyrlan, sem var nú þegar að flytja tvo slasaða ökumenn á Landspítala, lenti og tók þann þriðja upp í þyrluna. Voru þeir svo allir þrír fluttir á Landspítala til aðhlynningar. 

Ásgeir kveðst ekki hafa nánari upplýsingar um líðan mannanna. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert