Þrír slasaðir fluttir í þyrlu

Lögreglan á Vesturlandi staðfestir að þrír hafi verið fluttir með þyrlu til frekari aðhlynningar eftir harðan árekstur sem varð norðan við Hítará snemma í dag.

Alls lentu sjö manns í árekstri tveggja ökutækja, fjórir voru fluttir með sjúkrabifreið til aðhlynningar.

Um var að ræða árekstur jeppa og húsbíls sem mættust á Snæfellsnesvegi.

Vegurinn verður lokaður næstu 1-2 klukkustundirnar, þar sem Lögreglan á Vesturlandi og Rannsóknarnefnd samgönguslysa munu rannsaka vettvang nánar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert