Franski ævintýraljósmyndarinn og hugbúnaðarverkfræðingurinn Josselin Cornou, sem starfar einnig hjá Meta, náði mögnuðu myndskeiði er hann var að mynda rauðglóandi kvikuna slettast upp úr gosopi eldgossins við Litla-Hrút.
„Ég var að komast nær en þá sá ég dróna drífa að. Ég færði mig sviplega frá og sá hvernig bráðið hraunið hafði hitt drónann.“
Þannig lýsir Cornou atburðarásinni á samfélagsmiðlum. Hann auglýsir eftir eiganda drónans sem missti flugið og brotlenti á gígbarminum.
„Ef þetta var þinn dróni hefði ég áhuga á að sjá þitt sjónarhorn,“ segir hann í facebookhópnum: Iceland Geology | Seismic & Volcanic Activity in Iceland.
Cornou lokar færslunni með þeim orðum að um mjög óheppilegt atvik hafi verið að ræða.