Ríkið vill byggja upp við Jökulsárlón og leitar rekstraraðila

Gert er ráð fyrir því að stærstur hluti starfseminnar verði …
Gert er ráð fyrir því að stærstur hluti starfseminnar verði aðstaða fyrir veitingar, verslun, afþreyingu og útleigurými fyrir rekstraraðila. mbl.is/Ásdís

Fjármála- og efnahagsráðuneytið og umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið skoða útboð á uppbyggingu og rekstri innviða við Jökulsárlón ásamt mögulegu rekstrar- eða sérleyfi fyrir ákveðinn rekstur á svæðinu.

Gert er ráð fyrir að stærstur hluti aðstöðunnar verði uppbygging á aðstöðu fyrir veitingar, verslun, afþreyingu og útleigurými fyrir rekstraraðila ferðaþjónustu.

Óska ráðuneytin því eftir markaðsaðilum til samtals um mögulega aðkomu einkaaðila að uppbyggingu fasteigna og innviða við Jökulsárlón. Segir frá þessu í tilkynningu á vef Stjórnarráðsins.

Allt að 5.130 fm aðstaða

„Árið 2019 var nýtt deiliskipulag samþykkt vegna breyttra forsendna sem snúa að svæðinu en deiliskipulag gerir ráð fyrir uppbyggingu á allt að 5.130 fermetra aðstöðu á svæðinu. 

Jökulsárlón er einn fjölsóttasti ferðamannastaður landsins. Á árinu 2018 voru heimsóknir 838 þúsund og 817 þúsund á árinu 2019. Áætlanir gera ráð fyrir að heimsóknarfjöldi verði tæplega 1,0 milljón á árinu 2023. Jökulsárlón er hluti af jörðinni Fell sem íslenska ríkið keypti árið 2017 en sama ár sameinaðist svæðið Vatnajökulsþjóðgarði og var svæðið þar með friðlýst,“ segir í tilkynningunni.

Óska stjórnvöld eftir því að svör berist eigi síðar en 17. ágúst.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert