„Það er réttur barna að vera höfð með í ráðum“

Umboðsmaður barna hefur sent bréf til mennta- og barnamálaráðherra vegna …
Umboðsmaður barna hefur sent bréf til mennta- og barnamálaráðherra vegna sameiningar MA og VMA. Samsett mynd

Umboðsmaður barna hefur óskað eftir upplýsingum frá mennta- og barnamálaráðuneytinu um það hvort mat hafi verið lagt á bestu hagsmuni barna við ákvarðanatöku um sameiningu Menntaskólans á Akureyri og Verkmenntaskólans á Akureyri.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Umoðsmanni barna sem hefur nú sent bréf til mennta- og barnamálaráðherra vegna sameiningar MA og VMA. Fulltrúar nemenda við MA höfðu þá haft samband við embættið vegna áhyggna sinna.

„Börn eiga rétt á að koma sínum sjónarmiðum á framfæri,“ segir í tilkynningu Umboðsmanns barna. „Það er réttur barna að vera höfð með í ráðum við skipulag menntunar og skylda stjórnvalda að veita þeim raunverulega tækifæri til þess að koma sjónarmiðum sínum á framfæri og hafa áhrif.“

Salvör Nordal, umboðsmaður barna.
Salvör Nordal, umboðsmaður barna. Kristinn Magnússon

Börn fái að koma sínum sjónarmiðum á framfæri

Í bréfi umboðsmanns kemur fram að mat á því sem er börnum fyrir bestu eigi ávallt að liggja til grundvallar ákvarðanatöku af hálfu hins opinbera og að slíkt mat eigi að framkvæma áður en ráðist er í aðgerðir sem varða börn með einum eða öðrum hætti.

Jafnframt segir í bréfinu að hluti af slíku mati sé að veita börnum tækifæri til þess að koma sjónarmiðum sínum á framfæri og að réttmætt tillit sé tekið til skoðana þeirra. 

Þá óskaði umboðsmaður eftir upplýsingum um það hvort mat hafi verið lagt á bestu hagsmuni barna við ákvarðanatöku um sameiningu Menntaskólans á Akureyri og Verkmenntaskóla Akureyrar. Hvort nemendur hafi fengið tækifæri til þess að koma sjónarmiðum sínum á framfæri og hvort samráð hafi verið haft við nemendur og þá með hvaða hætti.

Umboðsmaður Barna.
Umboðsmaður Barna. mbl.is/Eggert Jóhannesson
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert