Katrín tók þátt í leiðtogafundi í Granada

Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra ræðir við fjölmiðlamenn í Granada í dag.
Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra ræðir við fjölmiðlamenn í Granada í dag. Ljósmynd/Stjórnarráðið

Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra tók í dag þátt í leiðtogafundi hins pólitíska bandalags Evrópuríkja (e. European Political Community, EPC) í Granada á Spáni.

Í tilkynningu á vef Stjórnarráðsins segir að á leiðtogafundinum hafi meðal annars verið rætt um stöðuna í Úkraínu en Volodomyr Zelenskí ávarpaði fundinn meðal annarra. Rætt var um sameiginlegar áskoranir í öryggis- og varnarmálum, loftslagsmál og orkuöryggi og um þá möguleika og hættur sem felast í þróun gervigreindar.

Forsætisráðherra tók þátt í hringborðsumræðum um orku-, umhverfis- og loftslagsmál og lagði þar áherslu á mikilvægi þess að Evrópuríki hraði áfram grænum orkuskiptum og tryggi áfram réttlát umskipti. Þrátt fyrir margar áskoranir á alþjóðavettvangi megi ríki heims ekki missa sjónar af markmiðum Parísarsáttmálans til að mæta loftslagsvánni sem sé stærsta viðfangsefni samtímans.

Þá átti forsætisráðherra fjölmörg samtöl við aðra leiðtoga og fundaði meðal annars með forseta Serbíu, forseta Bosníu-Hersegóvínu, utanríkisráðherra San Marinó og forsætisráðherra Mónakó þar sem rætt var um framboð Íslands til Mannréttindaráðs Sameinuðu þjóðanna fyrir tímabilið 2025 til 2027.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert