Vegna slæmrar veðurspár fyrir Vestfirði í nótt og á morgun, aðfangadag, má reikna með að ekki verði hægt að sinna mokstri á því svæði meðan veður gengur yfir.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá Vegagerðinni og segir að því sé hætt við að ekki verði mokað milli þéttbýliskjarna á Vestfjörðum á morgun.
Mikil hætta er talin á að snjóflóð falli á norðanverðum Vestfjörðum á morgun. Spáð er norðanstormi og hríðarveðri og búast má við miklum skafrenningi.
Í tilkynningu Vegagerðarinnar segir að staðan verður endurmetin kl. 9 í fyrramálið.